| Almannatengsl í 20 ár | Þann 30. nóvember síðastliðinn hélt KOM upp á 20 ára afmæli fyrirtækisins. KOM er elsta ráðgjafafyrirtæki landsins í almannatengslum, stofnað í janúar 1986. Með fyrstu stóru verkefnum þess var umsjón og skipulag alþjóðlegu fjölmiðlunar- og fréttaþjónustunnar sem sett var upp í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða árið 1986. Þetta var metnaðarfullt verkefni hjá nýju fyrirtæki. Hlutverk KOM var meðal annars að undirbúa komu heimspressunar sem var fljót að mæta þegar fréttist af þessum stórmerka fundi. Vel á þriðja þúsund fjölmiðla- og tæknimanna kom til landsins á meðan á leiðatogafundinum stóð og því vissara að vera vel undirbúinn.
Frá þeim tíma hefur KOM veitt hundruðum innlendra og erlendra fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka alhliða ráðgjöf og þjónustu á sviði almannatengsla. KOM hefur einnig veitt aðstoð við skipulagningu og framkvæmd mannamóta, innanlands og utan, auk þess að halda námskeið um almannatengsl.
Afmælisboðið var haldið í húsakynnum KOM en meðal boðsgesta voru viðskiptavinir, fyrrum starfsmenn og aðrir velunnarar fyrirtækisins. Það var mál manna að fagnaðurinn hefði heppnast vel og dagurinn verið eftirminnilegur.
 Það er einnig gaman að geta þess að í tilefni af 20 ára afmæli leiðtogafundarins ákvað Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri að koma á fót Friðarstofnun Reykjavíkur. Stofnunin sem ennþá er á byrjunarstigi verður rekin í samstarfi við íslenska og erlenda aðila.
| » Sjá nánar |
| | Groundfish Forum 15 ára | Í ár er þess minnst að KOM hefur staðið að skipulagi og framkvæmd alþjóðlegu sjávarafurðaráðstefnunnar Groundfish Forum (GF) fimmtánda árið í röð. GF er haldið fyrir æðstu stjórnendur helstu framleiðslu- og sölufyrirtækja í sjávarafurðum um allan heim. Þátttakendur sem eru um 200 koma frá rösklega 30 löndum í sex heimsálfum. Færri komast að en vilja. Groundfish Forum er nú virtasta ráðstefnan á sínu sviði í heiminum.
Í ár var ráðstefnan haldin á Hotel LeMeridien Park Atlantic í Lissabon, en á næsta ári verður hún haldin á Radisson SAS Hotel Norge í Bergen. Á 15 árum hefur Forum verið haldið á fyrsta flokks hótelum í 9 borgum Evrópu, þar með talið í Reykjavík (2001).
Jón Hákon Magnússon hefur verið með í skipulagi, framkvæmd og uppbyggingu Groundfish Forum frá byrjun. Hann lagði grunn að skipulagi ráðstefnunnar og samdi heiti hennar. Hulda Bjarnadóttir hjá KOM hefur undanfarin ár haldið utan um allt skipulag, skráningar og umsjón. Alda Möller hefur verið dagskrár- og ritstjóri ráðstefunnar öll árin.
 Þess má geta að daginn sem Groundfish Forum lýkur, hefst samdægurs undirbúningur næstu ráðstefnu, en segja má að skipulagsferlið standi í 12 mánuði.
|
| | Ábyrgð er dyggð | Öllum er eðlilegt að huga að öryggi sínu og sinna. Við kaupum okkur tryggingar, setjum upp reykskynjara, lokum gluggum og læsum húsinu þegar við förum að heiman. Það sama á við að loknum vinnudegi þegar við yfirgefum fyrirtækin sem við störfum hjá og erum ef til vill ábyrg fyrir. Hefðbundnar tryggingar ná hins vegar ekki yfir nema lítinn hluta þess sem getur gerst hjá fyrirtækjum og stofnunum. Áföllin geta verið margvísleg og afleiðingarnar verulega alvarlegar.
Það eina sem við vitum um áfallið er að það dynur á okkur fyrirvaralaust og oftast á versta tíma. Mörg dæmi eru til um fyrirtæki, innlend sem erlend, sem hafa orðið gjaldþrota vegna þess að þau tóku rangar ákvarðanir á ögurstundu og brugðust rangt við áfalli. Nauðsynlegt er að stjórnendur kunni að bregðast við vandanum, nái tökum á ástandinu, setji málið í réttan farveg og sendi rétt skilaboð út í samfélagið svo fljótt sem auðið er. Ef ekki er brugðist rétt við áfallinu strax á fyrstu klukkutímunum getur fyrirtækið orðið fyrir varanlegum álitshnekki og verulegum ímyndarskaða. Munum að ímynd er verðmætasta eign hvers fyrirtækis!
Eldvarnir og slökkvistarf KOM hefur mikla reynslu af áfallastjórnun (Crisis management) og hvernig bregðast á við þegar áfall dynur yfir fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök. Mörg fyrirtæki, stofnanir og samtök hafa leitað til KOM á undanförnum árum eftir aðstoð við að glíma við áföll og "vondar fréttir," sem annars hefðu getað skaðað ímynd þeirra og trúverðugleika.
Fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum er nauðsynlegt að sýna fyrirhyggju og undirbúa sig vel fyrir hugsanleg, jafnt sem óhugsandi áföll sem yfir þau geta dunið. Annars gætu þau þurft að greiða dýru verði fyrir eigið sinnuleysi þegar fram í sækir.
Ráðgjafar KOM hafa leitt fjölda stjórnenda gegnum sérhæfð námskeið í áfallastjórnun og aðstoðað þá við gerð áfallaáætlana fyrir fyrirtæki þeirra eða stofnanir. Markmið námskeiðanna og áætlana er að stjórnendur fyrirtækjanna nái tökum á vandanum á sem skemmstum tíma og komi í veg fyrir fjárhagslegt og ímyndarlegt tjón.
Þorsteinn G. Gunnarsson
|
| | Ánægðir með Íslandsförina | Fulltrúar fjórtán fyrirtækja í viðskiptasendinefnd frá Nýfundnalandi og Labrador eru himinlifandi með árangur ferðar þeirra til Íslands í byrjun nóvember. Mörg fyrirtækjanna komust í góð viðskiptasambönd í ferðinni.
Fyrirtækin sem hingað komu voru af margbreytilegum toga; allt frá nokkurra manna fyrirtækjum upp í stórfyrirtæki. Á meðal þeirra má nefna aðila á sviði fata- og skartgripahönnunar, bifreiðavarahluta, auglýsinga- og markaðsmála, prjónaiðnaðar, bókaútgáfu o.fl.
Megintilgangur fararinnar til Íslands var að efla viðskiptatengsl á milli landanna en þau hafa verið fremur lítil. Nýfundlendingar horfa mjög til Íslands og árangurs Íslendinga í alþjóðaviðskiptum í viðleitni sinni við að hasla sér völl utan landsteinanna.
Heimsókn fyrirtækjanna var skipulögð af viðskipta- og fjárfestingadeild Innovation, Trade and Rural Development (INTRD) stofnunarinnar á Nýfundnalandi í samvinnu við Newfoundland and Labrador Organisation of Women Entrepreneurs (NLOWE).
Undirbúningur og skipulagning á Íslandi var í höndum KOM almannatengsla. Skipulagðir voru hátt í 70 viðskiptafundir fyrir erlendu gestina. Sigurður Sverrisson, ráðgjafi hjá KOM, stjórnaði undirbúningsvinnunni. |
|
| |
| Fyrsta fréttatilkynningin | Ákaflega vísindalegar rannsóknir KOM-verja hafa leitt í ljós að fyrsta fréttatilkynning sem getið er um í heimildum hafi verið gefin út af opinberum aðilum fyrir réttum 2006 árum.
Um er að ræða boð frá Ágústusi keisara, þess efnis að skrásetja ætti alla heimsbyggðina, eins og getið er um í öðrum kapítula, fyrsta versi Lúkasarguðspjalls. Eins og við vitum fór Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð.
Í Betlehem kviknaði ljósið sem vísar okkur vegin til til friðar og mannúðar.
Gleðilega jólahátíð og farsælt nýtt ár! | | Húsfyllir og húsfyllir á Norðurlandi | Íbúar á Húsavík og reyndar öllu Norðurlandi fylgjast fullir áhuga með hagkvæmnirannsóknum vegna hugsanlegs álvers á Bakka við Húsavík. Það kom glögglega fram á kynningarfundum sem nýverið voru haldnir nyrðra. Húsfyllir var á fundunum tveimur sem haldnir voru á Akureyri og Húsavík þar sem fundagestir voru á þriðja hundrað en um hundrað manns mættu á fundinn sem haldin var á Akureyri.
Markmið fundanna var að kynna niðurstöður fyrsta hluta hagkvæmnirannsóknarinnar og svara spurningum fundargesta. Eftir framsöguerindi fræðimanna spunnust líflegar umræður og kunnu Eyfirðingar og Húsvíkingar vel að meta upplýsandi og fræðandi fundi.
Ráðgjafar KOM aðstoðuðu við skipulag fundanna, kynningu á þeim og fjölmiðlun | | Nýr starfsmaður | Nýr ráðgjafi hefur hafið störf hjá KOM sem er Íris Alma Vilbergsdóttir (f. 1978).
Íris lauk BA námi í fjölmiðlafræði af Félagsvísinda- og lagadeild frá Háskólanum á Akureyri árið 2006. Áður en Íris hóf störf hjá KOM starfaði hún sem blaðamaður á Vikunni.
Íris hefur töluverða reynslu af greinaskrifum en auk þess að skrifa fyrir Vikuna hefur hún unnið sem blaðamaður á Uppeldi og norðlenska tímaritinu VIÐ.
Hjá KOM sinnir Íris skipulagi á ráðstefnum og mannamótum, textagerð og samskiptum við fjölmiðla og athafnalífið.
Íris á eina dóttur, Ísabellu Alexöndru, og er hún níu ára gömul. | | Vel heppnuð ráðstefna um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja | Um miðjan nóvember stóðu KOM almannatengsl og Háskólinn í Reykjavík fyrir ráðstefnunni "Þitt tækifæri - allra hagur". Umfjöllunarefni ráðstefnunnar var samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja. Greinilega er mikill áhugi á þeirri umræðu en stóri salurinn á Nordica hotel var þéttsetinn þegar Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrum ráðherra, tók til máls í setningarræðu sinni.
Á ráðstefnunni kom meðal annars fram að íslensk fyrirtæki eru að verða sífellt meðvitaðri um þá samfélagslegu ábyrgð sem á þeim hvílir og hefur framlag til samfélagslegra verkefna margfaldast á síðustu árum. Gaman var að sjá hve fjölbreyttur hópur sótti ráðstefnuna og undir tenglinum Fréttir á www.kom.is má lesa samantekt um innhald erindanna. | |
| Starfsfólk | | |
| Póstlisti KOM | | Fréttabréf KOM ehf. er sent til viðskiptavina eða annarra vildarvina fyrirtækisins. Ef þú vilt ekki fá fréttabréfið sent vinsamlega sendu tölvupóst á kom@kom.is með orðinu afskrá í "subject" línunni. |
|
|